Bolludagur

Það er bolludagur í dag. Þessar myndir eru reyndar teknar í gær, þar sem það er auðveldara að gefa sér tíma í bollubakstur á sunnudegi.

#1 Smjörlíki, egg og hveiti. Nammnamm.
Smjörlíki, egg, hveiti og vatn.

#2 – Glassúraðar!

#3 – Krækiberjasulta, rjómi, glassúr, mjólk og scrabble. Fullkomin samsetning.
om nom nom

MMmmmm!

Endurvakning

Jæja, þetta gengur ekki lengur. Ég er búinn að eiga þetta domain í fjölda ára og mest allan tímann verið með einhverja síðu í gangi. Aldrei hef ég samt enst neitt í að skrifa nýja hluti á hana – en það breyttist hér og nú!

Núna er ég búinn að kaupa kjarri.is og hef ákveðið að gera eitthvað meira hérna. Minnst eitt blog á viku, allavega fram á sumar – er það ekki gott loforð svona til að byrja með?

Duglegheit

Ég var nú ekki eins duglegur við að setja inn færslur hérna og segja frá þessu æðislega sumari sem er að líða undir lok. Ég held ég sé bara búinn að vera að gera of margt skemmtilegt og ekki nennt að gefa mér tíma í að skrifa hingað inn.

Jelly #2
Marglytta í höfninni á Þingeyri.

Lokaþáttur í ferðasögu

Jæja, þá erum við komin aftur í borgina og hér kemur ferðasaga seinustu daga.

Miðvikudagur 1. júlí 2009
Við fórum ásamt ma&pa á tveimur bílum frá Stöðvarfirði beina leið á Borgarfjörð eystri. Húsbíllinn var skilinn eftir þar og fórum við öll á jeppanum inn í Loðmundarfjörð. Það var auðvitað stoppað hjá nokkrum eyðibýlum og dáðst að náttúrunni og kyrðinni í svona líka frábæru veðri! Þegar við komum aftur í Borgarfjörð fengum við okkur smá göngutúr um bæinn áður en við skriðum inn í tjald.

NaddakrossNaddakross í Njarðvíkurskriðum

Kjartan og Lovísa einhversstaðar á leið yfir í LoðmundarfjörðKjartan og Lovísa einhversstaðar á leið yfir í Loðmundarfjörð

LoðmundarfjörðurLoðmundarfjörður

Lovísa ljósmyndar fossLovísa ljósmyndar foss.

Fimmtudagur 2. júlí 2009
Eftir ágætis svefn í tjaldi, vöknuðum við upp úr níu og fórum að taka saman draslið okkar. Við skruppum í húsbílinn og fengum okkur morgunmat áður en við lögðum af stað niður á hérað. Eftir stutt matar- og ísstopp á Egilsstöðum keyrðum við til Mjóafjarðar. Við fórum alla leið út á Dalatanga með ýmsum stoppum á leiðinni.
_MG_8730Við stoppuðum í “sjoppunni” sem Kiddi vídjófluga er með á leiðinni frá Borgarfirði á hérað – sjálfsali í litlum skúr þar sem hægt er að kaupa gos og nammi. Við fengum okkur kók og Góa kúlur.

Kjartan á innrásarprammaÍ botni Mjóafjarðar liggur gamall innrásarprammi sem mér skilst að hafi átt að nota til síldarflutninga. Ég stóðst ekki mátið að príla upp í hann og skoða, þrátt fyrir að hann sé alveg að ryðga í sundur.

_MG_8741Foss í Mjóafirði sem ég man ekki hvað heitir

_MG_8821 Gamli vitinn á Dalatanga


Pabbi fleytir kellingar
Pabbi fleytir kellingar

Föstudagur 3. júlí 2009
Við vöknuðum í Atlavík í grenjandi rigningu, Ég hljóp úr tjaldinu og beint á klósettið en hefði alveg eins getað migið á mig miðað við hvað ég blotnaði við hlaupin úti í rigningunni. Plön okkar um að labba um skóginn breyttus og fórum við því bara beint niður á Stöðvarfjörð. Þar skiluðum við af okkur jeppanum og gerðum okkur klár til að keyra í átt að höfuðborginni. Við keyrðum á Akureyri með smá stoppum í Mývatnssveit og við Goðafoss. Á akureyri gerðum við lítið annað en að leita að tjaldstæði og plássi inn á því tjaldstæði og sváfum svo.

Kjartan og Lovísa við GoðafossLovísa og Kjartan við Goðafoss

Laugardagur 4. júlí 2009
Við vöknuðum við ljúfa söngva fuglanna og ekki svo ljúfa tóna þunnra útilegumanna að ganga frá tjöldum sínum. Við tókum okkur saman, rúntuðum niðrí miðbæ Akureyrar og fengum okkur göngutúr um bæinn. Næsta stopp eftir Akureyri voru Uppsalir, stoppuðum þar í stutt kaffi og spjall. Einhver fleiri mynda- og matarstopp voru svo tekin en leiðin lá þó nokkuð beint til Reykjavíkur þar sem biðu okkar uppáþrengjandi kettir og ryk verktakanna sem eru að laga blokkina að utan.
Kjartan í lystigarði AkureyrarLovísa í Lystigarði Akureyrar
Í Lystigarði Akureyrar

Il de Papas

Í dag fórum við út í Papey. Þar var, ótrúlegt en satt, enn meiri þoka. Við lögðum af stað í þoku, sáum Seli á skeri í þoku, lentum við bryggju í þoku, síðan birti aðeins til… en svo kom meiri þoka og við fórum um borð í bátinn í þoku og lentum aftur á Djúpavogi í þoku. Á leiðinni heim fengum við þó smá sól og á Stöðvarfirði beið okkar glampandi sólskin.

Þoka í PapeyÞoka í Papey

Áður en við fórum í Papey fórum við í Fuglaskoðun á Djúpavogi, kíktum í nýja fína kofann sem hefur verið reistur þarna við flugvöllinn og er bara nokkuð flottur. Ég lagðist svo í grasið og dundaði mér við að mynda Hávellu og Óðinshana meðan ég beið eftir að lómurinn færði sig nær mér. Það gerðist ekki.

Óðinshani á DjúpavogiÓðinshani að spóka sig á Djúpavogi.

VeðurathugunarstöðMeiri þoka og veðurathugunarstöð.

Við hittum alveg ótrúlega spaka hrafnabræður ofan á bæjarrústum úti í eynni. Mér fannst voðalega merkilegt að komast svona nálægt þeim og hef aldrei áður séð hrafna úr svona mikilli nálægð, ef við teljum ekki með teikningar Jóns Baldurs Hlíðberg. Jens fræddi okkur svo um að þessir hrafnar væru nú aldir upp af sumarábúendum eyjunnar og því nokkuð hændir að fólki.

Krummi í PapeyKrummi (í þoku)

Selir og TjaldurSelir og Tjaldur

Það er nú síðan ekki hægt að skrifa um Papeyjarferð án þess að láta allavega eina mynd af lunda fylgja með – allavega svona meðan það er ennþá eitthvað eftir af honum við landið.

Lundi í PapeyLundi í Papey

Endur og fiskur

Fríið er búið að vera frábært. Eftir vinnu á föstudegi brunuðum við norður á leið, stoppuðum tvisvar á leiðinni, á Hjaltastöðum til að heilsa upp á Helgu og fengum okkur svo að borða á veitingastað á 5. hæð á Akureyri. Við vorum komin í Mývatnssveitina um ellefuleytið, fórum til ömmu og spjölluðum og fórum svo í labb um Höfða fyrir svefninn. Þar sáum við Himbrima og unaðslegt landslag með léttri þoku.

Kálfastrandarstríparnir að kvöldlagi

Á laugardag tókum við gott labb í Dimmuborgum. Mikið rosalega var mikið af fólki þar! Allavega fimm rútur þegar við mættum á svæðið. Það er alltaf gaman að koma í Dimmuborgir og þrátt fyrir fjölda túrista, þá flæktust þeir ótrúlega lítið fyrir okkur. Eftir Dimmuborgir fórum við að vatninu í fuglaleit. Fórum svo á Kálfaströnd í góðan göngutúr áður en við héldum af stað austur á Stöðvarfjörð.

Tröppur að Kirkjunni í Dimmuborgum

Hér á Stöðvarfirði erum við búin að fara að veiða okkur fisk í soðið á nýjasta bátnum hér á heimilinu. Í gær löbbuðum við hálfa leið upp Mosfellið(já, það er víst líka til hér fyrir austan) og sáum þoku. Lovísa baðaði Sóla. Í dag höfum við að mestu legið í leti en kíktum þó í steinasafn Petru.

Stöðvarfjörður að hverfa í þokuna

Steina-PetraSteinasafn PetruÁstfangin í Steinasafninu

Skrímsli

Let’s go fly a kite

Ég keypti mér flugdreka í Rúmfatalagernum í seinustu viku. Ég man ekki eftir því að mér hafi nokkurn tímann sem krakki tekist að halda flugdreka á lofti. Núna hinsvegar náði ég að halda honum fljúgandi í allt að 20 sekúndur! Þetta er alveg glettilega skemmtilegt.

Kjartan og flugdreki

Er ekki næsta skref svo að kaupa stærri og sterkari flugdrekka, teipa myndavél við hann og fara að stunda ljósmyndun úr lofti?

Sumar

Þetta sumar hefur verið alveg frábært til þessa! Ég hef tekið helling af myndum, farið í nokkra mislanga reiðtúra(þar með einn 8 tíma langan í grenjandi rigningu á 17. júní), farið á ættarmót Laugabólsættarinnar, rúntað um Reykjanesið og spilað kubb(víkingaspilið). Og gamanið er bara rétt að byrja.

Á morgun leggjum við af stað í ferðalag, byrjum á Mývatni og höldum svo á austfirðina.

Three fulmars | Þrír fýlar
Þrír fýlar á Reykjnestá.